Sonurinn aldrei fengið sýklalyf né læknisaðstoð

Alicia Silverstone á eitt barn sem er níu ára.
Alicia Silverstone á eitt barn sem er níu ára. AFP

Clueless-leikkonan Alicia Silverstone fer óhefðbundnar leiðir í uppeldi sonar síns. Stjarnan er vegan og það er hinn níu ára gamli sonur hennar einnig. Hún segir hann óvenjulega hraustan og setur það í samhengi við mataræði hans. 

„Hann er svo gott dæmi um heilbrigði. Þetta er barn sem er á jurtafæði,“ sagði Silverstone í viðtali á vef ET. Hún sagði son sinn svo hraustan að hann hefði hvorki þurft á sýklalyfjum að halda né læknisaðstoð. „Flest börn eru alltaf með eyrnabólgu, þau eru alltaf að taka lyf. Ég er ekki að segja að ég gæfi honum þau ekki ef hann þyrfti á þeim að halda. Ég er að segja að hann þarf ekki á þeim að halda.“

Sonurinn Bear hefur aðeins orðið veikur tvisvar sinnum á níu ára langri ævi sinni. Þau veikindi vöruðu aðeins í nokkra tíma að sögn Silverstone. Sonur hennar fær reyndar hor stundum en það stoppar hann ekki í að klifra í trjám. „Svo fólk getur séð að börn á jurtafæði eru mjög hraust. Það er ekki bara þannig að þau séu allt í lagi. Þau geta verið betri.“

Sonurinn Bear er áberandi á samfélagsmiðlum Silverstone og rata mæðginin reglulega í heimspressuna fyrir oft og tíðum óhefðbundnar venjur. Silverstone segist birta myndir af syni sínum á samfélagsmiðlum af því hún er stolt móðir. Hún birtir líka myndir til þess að forðast áreiti ljósmyndara. „Fólk tjaldaði fyrir utan húsið mitt í marga daga þegar Bear fæddist. Í sex vikur var fólk fyrir utan húsið. Um leið og ég birti mynd fór það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert