Gurrý og Egill eiga von á barni nr. 2

Guðríður Jónsdóttir og Egill Einarsson eiga von á barni nr. …
Guðríður Jónsdóttir og Egill Einarsson eiga von á barni nr. 2. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einkaþjálfarinn Egill Einarsson og kærasta hans Guðríður Jónsdóttir eiga von á sínu öðru barni. Egill tillkynnti óléttuna á samfélagsmiðlum á jóladag. 

Egill og Gurrý eiga fyrir eina dóttur, Evu Malen, en á nýju ári eiga þau von á litlum dreng.

„Stefnir í að 2021 verði veisla. Eva Malen er að ofpeppast hérna heima en hún er að fara að fá lítinn bróður í maí. Gleðileg jól allir vona þið hafið það frábært,“ skrifaði Egill undir tilkynninguna á Instagram.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert