Varð mamma korteri yfir jól

Emma Roberts er orðin móðir.
Emma Roberts er orðin móðir. AFP

Leikkonan Emma Roberts náði að halda jól og eignaðist svo sitt fyrsta barn. Roberts og leikarinn Gerrett Hedlund eignuðust son sunnudaginn 27. desember. Parið hefur enn ekki greint opinberlega frá komu barnsins en vefurinn TMZ greinir frá fæðingunni. 

Nýbakaðir foreldrarnir eignuðust son sem fékk nafnið Rhodes. Drengurinn var um fjögur kíló og heilsast móður og barni vel. Roberts og Hedlund hafa verið saman síðan vorið 2019. Þau byrjuðu saman stuttu eftir að Roberts og leikarinn Evan Peters slitu trúlofun sinni.

Roberts opnaði sig um óléttuna í viðtali í vetur og sat fyrir kasólétt. Þar sagði hún frá því að læknir hefði ráðlagt henni að frysta egg sín eftir að hún greindist með endómetríósu. Henni var tjáð að endómetríósan gæti haft áhrif á frjósemi hennar en hún var heppin og annað kom í ljós. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert