Deildi áður óséðri mynd af dótturinni

Kylie Jenner birti áður óséða mynd af Stormi.
Kylie Jenner birti áður óséða mynd af Stormi. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner birti á dögunum áður óséða mynd af dóttur sinni Stormi. Jenner tók þátt í leik sem margar instagramstjörnur hafa tekið þátt í upp á síðkastið þar sem aðdáendur geta óskað eftir ákveðnum myndum eða myndböndum. 

Myndin sem hún hafði ekki birt áður var af Stormi aðeins vikugamalli. Hún var einnig beðin að deila nýjustu myndinni af Stormi, en það var mynd af henni á hlaupahjóli.

Þegar einn aðdáandinn bað svo um sætustu myndina af henni og Stormi birti hún mynd af sér og dótturinni þegar hún var nýbúin að fá „stóru stelpu“-rúmið sitt.

Mynd af Stormi viku gamalli.
Mynd af Stormi viku gamalli. Skjáskot/Instagram
Nýjasta myndin af henni.
Nýjasta myndin af henni. Skjáskot/Instagram
Sætasta myndin af þeim mæðgum saman.
Sætasta myndin af þeim mæðgum saman. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert