Constance Wu er orðin móðir. Hin 38 ára gamla leikkona eignaðist sitt fyrsta barn með tónlistarmanninum Ryan Knatter í sumar. Wu náði bæði að fela meðgönguna og komu barnsins þökk sé kórónuveirufaraldrinum.
„Þau hafa það gott og eru svo spennt og hamingjusöm,“ sagði heimildarmaður E! þegar fyrst fréttist af fæðingu barnsins á dögunum.
Wu, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í stórmyndum á borð við Crazy Rich Asians og Hustlers, hefur ekki sést opinberlega síðan í mars eða þegar kórónuveirufaraldurinn fór á flug í Bandaríkjunum. Hún hefur ekki heldur verið virk á samfélagsmiðlinum Instagram síðan í maí.