Hvetja börnin til að hreyfa sig

Viktoría prinsessa heldur á Estelle, frumburðinum.
Viktoría prinsessa heldur á Estelle, frumburðinum. AFP

Sænska krónprinsessan Viktoría og eiginmaður hennar Daníel prins leggja mikið upp úr góðu uppeldi barna sinna. Í viðtali fyrr á árinu sagði Daníel að þeim hjónum fyndist mikilvægt að börnin færu út að leika sér á hverjum degi, hreyfðu sig og næðu upp púlsinum.

„Þetta á eflaust við um alla. Öllum hættir til þess að sitja fyrir framan sjónvarpið og láta tímann líða. Allir foreldrar eru á sama báti og þess vegna er mikilvægt að sýna gott fordæmi og vera duglegur að fara út að hreyfa sig,“ sagði Daníel prins.

Viktoría og Daníel eiga tvö börn, þau Estelle og Óskar, átta og fjögurra ára.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert