Felur sig á klósettinu

Gabrielle Union rekur stórt heimili.
Gabrielle Union rekur stórt heimili. AFP

Leikkonan Gabrielle Union eignaðist sitt fyrsta barn árið 2018 og á þar að auki þrjú stjúpbörn með manni sínum, fyrrverandi körfuboltakappanum Dwyane Wade. Hún felur sig stundum á klósettinu til þess að fá frið fyrir börnum sínum. 

Union sagðist í viðtali við Parents kaupa sér aukatíma á klósettinu. Union er ekki sú eina sem gerir þetta. Í könnun sem gerð var á meðal þúsund bandarískra foreldra kom í ljós að 49 prósent foreldra nýttu klósettið sem felustað frá börnum sínum. 

Börnin á heimilinu eru tveggja ára til 18 ára. Á árinu lærði Union að það væri í lagi að biðja aðra um hjálp. „Að þurfa hjálp gerir þig ekki veika eða viðkvæma. Það þýðir bara að þú þarft hjálp eins og allir aðrir,“ sagði leikkonan um foreldralærdóm sinn á árinu 2020. „Ég hef ekki öll svörin. „Ég veit það ekki“ er alvörusvar sem fólk ætti að nota oftar.“

Gabrielle Union og Dwyane Wade ásamt dóttur sinni.
Gabrielle Union og Dwyane Wade ásamt dóttur sinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert