Ákvað nafnið áður en hún varð ólétt

Ashley Tisdale og Christopher French.
Ashley Tisdale og Christopher French. AFP

High School Musical-stjarn­an Ashley Tis­dale á von á sínu fyrsta barni í ár og segist vera löngu búin að ákveða nafnið. Nafnið var ákveðið áður en hún varð ólétt.

„Við ákváðum nafnið áður en hún kom til sögunnar. Okkur datt nafnið í hug fyrir ári,“ sagði Tisdale í viðtali. 

Tisdale segir að meðgangan gangi vel og hún finni svo sannarlega fyrir aukinni sætindaþörf. Þá segist hún ætla að taka sér hlé frá störfum eftir komu dótturinnar en þó ekki of lengi. „Mér er sagt að fyrstu tvær vikurnar séu erfiðastar. Þannig að ég tek mér að minnsta kosti mánuð í leyfi. Annars elska ég að vinna og finnst gaman að vera með mörg verkefni í einu,“ sagði Tisdale.

Þetta er fyrsta barn Tis­dale og French en þau hafa verið sam­an frá ár­inu 2012. Þau trú­lofuðu sig á toppi Empire State-bygg­ing­ar­inn­ar í New York árið 2013 og gengu svo í hjónaband 2014. Í október á síðasta ári ljóstruðu þau upp um kyn barnsins en þau eiga von á dóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert