Sonur Winslet vill verða leikkona

Yngsta barn Kate Winslet er sjö ára.
Yngsta barn Kate Winslet er sjö ára. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet á þrjú börn, eina stelpu og tvo stráka. Yngsta barn hennar, hinn sjö ára gamli Bear, vill feta í fótspor móður sinnar og verða leikkona. Winslet greindi frá áformum sonar síns í þætti Jimmy Kimmel á dögunum. 

„Mamma ég er með játningu,“ sagði sonur Winslet mjög alvarlegur. Winslet fannst hann dramatískur þegar hann sagðist bara ætla að segja það sem bjó inni í honum. „Ég vil verða leikkona.“

Winslet fór að hlæja að syni sínum sem fannst ekkert fyndið við játningu sína. „Þetta er ekkert fyndið. Ég vil verða leikkona,“ endurtók sonur hennar.  

Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtalið við Winslet. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert