Hilton byrjuð í tæknifrjóvgunarferli

Paris Hilton.
Paris Hilton. AFP

Hótelerfinginn Paris Hilton fann sálufélaga sinn þegar hún kynntist viðskiptamanninum Cart­er Reum. Parið talar mikið um brúðkaup og er nú þegar byrjað að undirbúa barneignir. Hilton sem verður fertug í febrúar er byrjuð í tæknifrjóvgunarferli. Hilton sagði frá áformum sínum í hlaðvarpsþættinum The Trend Reporter with Mara 

Hilton vill eignast tvíbura fyrst en samtals dreymir hana um þrjú til fjögur börn. 

„Við höfum verið í tæknifrjóvgunarferli svo ég get valið tvíbura ef ég vil. Kim er reyndar sú sem sagði mér frá því. Ég vissi ekki neitt um þetta,“ sagði Hilton og átti þar við vinkonu sína Kim Kardashian. 

Hilton er búin að fara í eggheimtu. „Það var erfitt en ég vissi að það væri þess virði. Ég gerði það nokkrum sinnum,“ sagði Hilton. Hún hrósaði kærasta sínum fyrir stuðninginn. 

„Ég er mjög spennt að halda áfram með næsta skref í lífi mínu og loksins eignast alvörulíf,“ sagði Hilton sem telur að tilgangur lífsins sé að eignast fjölskyldu og börn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert