Tóku sér tveggja daga frí frá börnunum

Ashton Kutcher og Mila Kunis.
Ashton Kutcher og Mila Kunis. mbl

Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis tóku sér tveggja daga frí frá börnunum sínum nýlega. Þau hafa verið með börnin í hálfgerðri sóttkví í meira en níu mánuði og fundu fyrir miklu frelsi þegar þau gátu loksins farið út af heimilinu. 

Kutcher og Kunis fóru þó ekki beint í frí heldur fóru þau í tökur fyrir auglýsingu sem sýna á í sjónvarpinu þegar Ofurskálin í NFL-deildinni fer fram. 

„Við vorum í sóttkví og við vorum föst með börnunum okkar í níu eða 12 mánuði og ég var bara: „Já elskan! Tveir dagar í frí.“ Við vorum bókstaflega bara „já ókei gerum þetta“ og við gerðum það. Og mér finnst leiðinlegt að segja það en við upplifðum mikið frelsi,“ sagði Kunis í viðtali við Entertainment Tonight

Hjónin eiga dótturina Wyatt Isabelle sex ára og soninn Dimitri Portwood fjögurra ára.

Kunis segir að þau hafi brallað ýmislegt með börnunum sínum í sóttkví. Þau hafi til dæmis föndrað úr öllu mögulegu og þegar þau voru búin að föndra úr hefðbundnum efnivið ákváðu þau að föndra úr ruslinu sínu. 

„Skemmtilegt rusl. Þegar þú ert búinn að föndra bókstaflega allt, þá læturðu börnin þín fá poka af skemmtilegu rusli, þetta er svona endurvinnsludót og þau geta gert vélmenni úr því, eða virki eða borg eða bæ,“ sagði Kunis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert