Malik tók á móti dóttur sinni

Zayn Malik og Gigi Hadid.
Zayn Malik og Gigi Hadid. mbl

One Direction-stjarnan Zayn Malik tók á móti dóttur sinni, Khai, þegar hún kom í heiminn. Malik og kærasta hans Gigi Hadid eignuðust sitt fyrsta barn síðasta sumar en Hadid sagði frá fæðingunni í nýjasta blaði Vogue

Hadid segir að hún hafi fætt hana heima og hún hafi ekki fengið verkjalyf í fæðingunni. Hún gekk eina viku fram yfir með litlu stelpuna. „Þegar þú sérð einhvern gera þetta, þá horfirðu á hann öðruvísi. Ég leit örugglega út fyrir að vera klikkuð,“ sagði Hadid en auk Maliks voru mamma hennar Yolanda og systir hennar Bella viðstaddar fæðinguna. 

Malik tók svo á móti litlu stelpunni. „Ég fattaði ekki einu sinni að hún var komin í heiminn. Ég var svo búin á því og leit upp og sá hann halda á henni. Það var svo fallegt,“ sagði Hadid og bætti við að Malik hefði fundist hann hjálparlaus í fæðingunni og ekki geta gert neitt fyrir hana. 

Hadid segir að hún hafi fundið fyrir mesta sársauka lífs síns við að koma Khai litu í heiminn og íhugað að fá mænudeyfingu. 

„Það kom tímapunktur þar sem ég fór að velta fyrir mér hvernig þessi upplifun væri með mænudeyfingu. Þá leit ljósmóðirin á mig og sagði: „Þú ert að gera þetta. Enginn getur hjálpað þér. Þú ert komin of langt í ferlinu til að fá mænudeyfingu hvort sem er, þú værir að rembast á sama hátt á spítala,““ sagði Hadid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert