Svona lítur barnið úr Beverly Hills út í dag

Beverly Hills 90210 voru afar vinsælir á síðustu öld.
Beverly Hills 90210 voru afar vinsælir á síðustu öld. Skjáskot

Margir sátu límdir við skjáinn þegar sjónvarpsþættirnir Beverly Hills 90210 voru sýndir og muna eftir barninu Ericu McKay sem var hálfsystir Dylans (Luke Perry) sem hann vissi ekki að hann ætti. En hvað varð um þessa stúlku?

Erica McKay var leikin af Noley Thornton sem nú er 37 ára. Eftir Beverly Hills-þættina lék hún meðal annars í Heiðu og naut mikillar velgengni sem barnaleikkona. Nú virðist hún hafa lagt leiklistina til hliðar og nýtur lífsins í Kaliforníu.

Thornton segir að það hafi verið ánægjulegt að vinna með Luke Perry. Hann hafi verið einn indælasti maður sem hún hafi unnið með en Perry lést 2019 aðeins 52 ára að aldri. 

Noley Thornton minnist góðra tíma með Luke Perry.
Noley Thornton minnist góðra tíma með Luke Perry. Skjáskot/Instagram
Noley Thornton í dag.
Noley Thornton í dag. Skjáskot/Youtube



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert