Býr sig undir fæðinguna í ræktinni

Meghan Trainor og Daryl Sabara eiga von á sínu fyrsta …
Meghan Trainor og Daryl Sabara eiga von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Meghan Trainor, sem gengur nú með sitt fyrsta barn, undirbýr sig undir fæðinguna og mánuðina eftir hana í ræktinni. Trainor deildi myndbandi af sér í ræktinni og sagðist vera tilbúin í fæðinguna.

„Mér finnst ég svo vel undirbúin fyrir fæðinguna. Ég er svo stolt af sjálfri mér og ég er svo þakkát fyrir æðislega þjálfarann minn. (Hún lét mig gera hluti sem ég hélt að væri ekki hægt.) Hún hefur hjálpað mér að hafa stjórn á meðgöngusykursýkinni,“ skrifaði Traubir undir myndbandið. 

Trainor greindist með meðgöngusykursýki í lok árs 2020 og hefur lagt hart að sér við að hafa stjórn á henni og fylgist vel með. 

„Það er ekki auðvelt að finna hvatningu til þess að hreyfa sig með skrítna verki í kviðnum og með stóran kvið, en ég sýndi sjálfri mér að ég get, og mun gera allt fyrir barnið mitt,“ skrifaði Trainor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert