Eugenie prinsessa fæddi son

Eugenie prinsessa og Jack Brooksbank eignuðust son í gær.
Eugenie prinsessa og Jack Brooksbank eignuðust son í gær. AFP

Eugenie prinsessa og eiginmaður hennar Jack Brooksbank eignuðust son í gær. Prinsessan deildi fyrstu myndinni af litla drengnum í gær, svarthvítri mynd af fingrum hans og foreldranna. 

Hún setti þrjú blá hjörtu undir myndina. 

Þetta er fyrsta barn þeirra hjóna saman og fyrsta barnabarn Andrésar Bretaprins og Söruh Ferguson. Hann er níunda barnabarnabarn Elísabetar Englandsdrottningar og Filippusar hertoga.

Drengurinn litli kom í heiminn á Portland-spítalanum og var Brooksbank viðstaddur fæðinguna. Ekki hefur verið greint frá nafni drengsins litla, en veðbankar eru í viðbragðsstöðu og mikil spenna ríkir fyrir nafngiftinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert