Sam Asghari, kærasta Britney Spears, langar til að eignast börn með henni. Asghari og Spears hafa verið saman í meira en fjögur ár og er Asghari tilbúinn til að taka næsta skref í sambandinu.
„Ég hef það í forgangi í mínu lífi að vera hógvær og ég skil hvaðan ég kom og hvert ég er að fara,“ sagði Asghari í viðtali við Forbes. Hann langar til að taka feril sinn á næsta stig og fara að leika en hingað til hefur hann unnið fyrir sér sem fyrirsæta og leikið í tónlistarmyndböndum.
„Mig langar líka að taka sambandið mitt á næsta stig. Mig langar til að verða faðir. Mig langar til að vera ungur faðir,“ sagði Asghari sem er 27 ára gamall.