Í fyrstu klippinguna sjö ára

Cricket litla var ánægð á meðan klippingunni stóð.
Cricket litla var ánægð á meðan klippingunni stóð. skjáskot/Instagram

Hin sjö ára gamla Cricket, dóttir leikkonunnar Busy Philipps, var í sinni fyrstu klippingu á dögunum. Móðir hennar fagnaði ákaflega og skrásetti allt ferlið á Instagram. 

„Það gerðist loksins! Eftir sjö ár og átta mánuði vildi Cricket loksins fara í klippingu. Sem betur fer var Kiki hér í New York til að vinna með mér á morgun og gat gefið Cricket draumaklippinguna sína,“ skrifaði Philipps. 

Cricket litla virtist hæstánægð meðan á klippingunni stóð og ánægð með afraksturinn, en hún var komin með mjög sítt hár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert