Ofurfyrirsæta eignast fyrsta barn sitt

Em­ily Rataj­kowski eignaðist barn á dögunum.
Em­ily Rataj­kowski eignaðist barn á dögunum. Skjáskot/Instagram

Ofurfyrirsætan Em­ily Rataj­kowski og eiginmaður hennar, kvikmyndaframleiðandinn Sebastian Be­ars-McCl­ard, eignuðust sitt fyrsta barn hinn 8. mars. Rataj­kowski greindi frá komu barnsins á samfélagsmiðlum. 

Barnið fékk nafnið Sylvester Apollo Bear og er greinilega kallað Sly. Rataj­kowski lýsir morgninum sem barnið kom í heiminn sem súrrealískum, fallegum og fullum af ást. Hún birti mynd af sér gefa ungbarninu brjóst. 

Þegar Rataj­kowski greindi frá óléttunni sagðist hún ekki vilja segja frá kyni barnsins. „Við segj­um fólki að við mun­um ekki vita kyn barns okk­ar fyrr en það er 18 ára og þá muni það segja okk­ur það,“ sagði Rataj­kowski í pistli á vef Vogue. 

View this post on Instagram

A post shared by Emily Ratajkowski (@emrata)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert