Sonur Elons Musks er tíu mánaða og farinn að reyna fyrir sér í tónlistinni. Móðir hans fjöllistakonan Grimes birti hjartnæmt myndband af honum á Instagram að spila á hljóðgervil fyrir börn og ljóst er að barnið dafnar vel og nýtur þess að búa til hljóð.
Barnið heitir hinu þjála nafni X Æ A-XII og fæddist í maí í fyrra en parið leggur sig fram um að leyfa barninu að upplifa listir og menningu enda báðir foreldrarnir mjög skapandi einstaklingar.