Erfitt að ala upp ungling

Leikkonan Jennifer Garner.
Leikkonan Jennifer Garner. AFP

Leikkonan Jennifer Garner segir að það sé erfitt að sjá börnin sín vaxa úr grasi og þurfa að breyta samskiptum sínum gagnvart litlu börnunum sínum. Hún á þrjú börn með fyrrverandi eiginmanni sínum Ben Affleck. 

Elst er dóttirin Violet sem er 15 ára en þau eiga líka Seraphinu sem er 12 ára og soninn Samuel sem er 9 ára. 

„Það sem brýtur hjarta mitt er bara það að hún er að vaxa úr grasi. Það er það sem er erfitt. Það er svo erfitt fyrir mömmuna og unglinginn að þurfa að slíta þessu sambandi milli foreldris og barns. Það er það sem svo erfitt,“ sagði Garner í viðtali við The Jess Cagle Show. 

Garner leikur nú í kvikmyndinni Yes Day þar sem erfið unglingsstúlka er aðalumfjöllunarefnið. Þar fer Garner með hlutverk móðurinnar og segist hún aldrei hafa leikið í mynd sem hún tengir jafn sterklega við einkalíf sitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert