Er stoltust af móðurhlutverkinu

Isla Fisher er stolt móðir þriggja barna.
Isla Fisher er stolt móðir þriggja barna. AFP

Leikkonan Isla Fisher hefur leikið í ótal myndum og notið mikillar velgengni. Hún segist þó stoltust af því að vera móðir en hún á þrjú börn með Sasha Baron Cohen.

„Ég er stoltust af því að vera móðir. Þetta er mitt uppáhaldsumræðuefni en ég reyni samt að tala ekki mikið um móðurhlutverkið opinberlega. Börnin mín verða að fá að lifa venjulegu lífi. Allir foreldrar vilja vernda börn sín. Ef þau vilja lifa lífi sínu í sviðsljósinu þá er það undir þeim komið. Ef ég segi eitthvað um þau í fjölmiðlum þá gæti það angrað þau síðar meir. Enda verða þau einhvern tímann unglingar!“ segir Fisher í viðtali við Body and Soul.

Fjölskyldan flutti nýlega til Ástralíu þar sem Fisher er uppalin. Hún vill þó ekki gefa upp ástæður flutningsins af öryggisástæðum. 

„Hér finnst mér ég vera örugg. Hér ólst ég upp. Jafnvel þótt ég hafi sótt nýjan skóla á hverju ári og þurft að læra að vera fyndin til þess að eignast vini hratt og hrista af mér það að vera lágvaxin og rauðhærð, þá átti ég margar af mínum bestu stundum hér í Ástralíu. Ég sakna þess þegar ég er ekki í Ástralíu. Hér finn ég ekki fyrir neinum þrýstingi um að gera eða segja eitt né neitt. Ég þarf varla að klæðast skóm!“ 

Sacha Baron Cohen og Isla Fisher.
Sacha Baron Cohen og Isla Fisher. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert