Grænlensk börn ánægð með íslensk páskaegg

Grænlensku börnin í þorpinu Ittoqqortoormiit hæstánægð með páskaegin sín. Myndina …
Grænlensku börnin í þorpinu Ittoqqortoormiit hæstánægð með páskaegin sín. Myndina tók Jonathan Petersen skólastjóri. Í bakgrunni er ísbjarnarfeldur, en í þorpinu eru ísbirnir tíðir gestir. Ljósmynd/Aðsend

Börn í afskekkta þorpinu Ittoqqortoormiit á Grænlandi fengu íslensk páskaegg að gjöf á dögunum. Tilefnið var páskahátíð skákfélagsins Hróksins. Hátíðin fer ekki fram í ár vegna heimsfaraldurs en skákfrömuðurinn Hrafn Jökulsson og félagar í Kalak og Vináttu í verki náðu þó að koma páskaeggjum frá Bónus til allra barnanna í þorpinu.  

Öll páskaegg komust óbrotin á leiðarenda, eftir heilmikið ferðalag að sögn Hrafns. Icelandair, Norlandair og Air Greenland tóku höndum saman og fluttu páskaeggin ókeypis. Eimskip og Royal Arctic Line önnuðust líka ókeypis sendingu á hátt á þriðja hundrað páskaeggjum sem flutt voru gegnum Nuuk.

„Það var mikil hamingja meðal barnanna á Grænlandi að fá páskaeggin eins og hægt er að ímynda sér. Það var sérlega gaman að koma Bónuspáskaeggjunum til barnanna í Ittoqqortoormiit. Bónuspáskaeggin fara víða um Grænland. Börnin í Nanortalik og Kuummiut fá páskaegg að gjöf frá Brimi hf., sömuleiðis gestir Kofoed Skole, sem er athvarf fyrir heimilislausa í Nuuk, og börnin í Kulusuk, sem er næsti bær við Ísland. Ég vil þakka Bónus frábæra samvinnu og stuðning við að gleðja grænlensku börnin. Þetta yljar um hjartarætur,“ segir Hrafn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert