Splunkunýr barnatími tekinn upp á Akureyri

Upptökur á glænýrri íslenskri sjónvarpsþáttaröð fyrir börn hófust í vikunni hjá N4 á Akureyri og er það í fyrsta sinn sem vitað er að slíkt sjónvarpsefni sé að fullu unnið utan höfuðborgarsvæðisins. Þættirnir eru gerðir í samstarfi við fræðslusvið þjóðkirkjunnar sem sr. Hildur Björk Hörpudóttir stýrir, og nefnast Himinlifandi.

Þættirnir verða sýndir á N4 í haust á sunnudagsmorgnum og verða auk þess aðgengilegir á samfélagsmiðlum kirkjunnar og N4. Handritshöfundar og aðalleikarar eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og séra Oddur Bjarni Þorkelsson á Möðruvöllum sem jafnframt semur tónlist ásamt Rósu Ásgeirsdóttur. Allir þeir sem koma að gerð þáttanna starfa hjá N4 og segist María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri N4 afar þakklát því trausti sem kirkjan sýni með því að leita til N4 um gerð þáttanna, með því sé stigið nýtt og stórt skref í að vinna slíka þætti með fagfólki á landsbyggðunum. Pétur G. Markan samskiptastjóri þjóðkirkjunnar tekur undir þessi orð og segist hlakka til að fylgjast með framvindu vinnunnar. 

„Ég tel boðskapinn í þáttunum mikilvægan enda eru kristin gildi eitthvert besta veganesti sem hver og einn getur tekið með sér út á ævibrautina – út í hinn víða heim og aftur heim. Gildi sem við viljum tileinka okkur þar sem náungakærleikur, umhverfisvernd, manngildi og samkennd er sterki þráðurinn sem allt hverfist um.

Svo er það líka svo að það er afar mikilvægt fyrir landsbyggðarstofnun, eins og þjóðkirkjan er, að vinna metnaðarfullt tímamótaverkefni alfarið norðan heiða. Það sýnir sérstöðu þjóðkirkjunnar sem við erum afar stolt af. Ég er handviss um að verkefnið verður börnum og aðstandendum mikil ánægjublessun og til sóma fyrir þjóðkirkjuna og N4,“ segir Pétur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert