Deila forræði yfir börnunum eftir skilnað

Kim Kardashian sótti um skilnað við Kanye West 19. febrúar …
Kim Kardashian sótti um skilnað við Kanye West 19. febrúar síðastliðinn. AFP

Raunveruleikastjanan Kim Kardashian og fjöllistamaðurinn Kanye West hafa náð sáttum um forsjármál barna sinna. Munu þau deila forræði yfir fjórum börnum sínum. Kardashian sótti um skilnað við West 19. febrúar síðastliðinn. 

Bæði hafa þau skilað inn gögnum og eru þau sammála um að hjónaband þeirra skuli enda. Þau hafa einnig sammælst um að hvorugt þeirra þurfi framfærslueyri frá hinu. 

Kardashian og West eiga fjögur börn saman, þau North, Saint, Chicago og Psalm, en þau eru á aldrinum 2 til 7 ára. 

Allt hjónaband sitt héldu þau eignum sínum aðskildum vegna kaupmála sem þau gerðu áður en þau giftu sig. Skilnaðurinn mun því hvorki stranda á því hvernig eigi að skipta eignum né forræði yfir börnunum. 

BBC

Kim Kardashian og Kanye West munu deila forræði yfir börnum …
Kim Kardashian og Kanye West munu deila forræði yfir börnum sínum fjórum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert