Salka Sól svæfir börnin á kvöldin

Sögur fyrir svefninn eru hrífandi ævintýri sem hjálpa börnum að finna ró fyrir svefninn með aðstoð ímyndunaraflsins. Rithöfundurinn Eva Rún Þorgeirsdóttir hefur margra ára reynslu af því að kenna börnum jóga, slökun og hugleiðslu og þangað sækir hún innblástur fyrir sögurnar.  

Sögurnar eru skrifaðar sérstaklega fyrir Storytel á Íslandi og leiða unga hlustendur inn í jákvæðan og uppbyggilegan ævintýraheim – og þaðan inn í draumalandið. Salka Sól gæðir sögurnar lífi með einstökum lestri sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert