Birti fyrstu myndina af dótturinni

Fyrrverandi parið Irina Shayk og Bradley Cooper.
Fyrrverandi parið Irina Shayk og Bradley Cooper. AFP

Fyrrverandi parið Irina Shayk og Bradley Cooper, sem eitt sinn var heitasta par í heimi, á saman eina dóttur. Ofurfyrirsætan og leikarinn reyna að halda dóttur sinni fjarri kastljósi fjölmiðla en nú breytti Shayk til og birti mynd af dóttur sinni á instagramsíðu sinni. 

Hin fjögurra ára gamla Lea De Seine sést toga í móður sína á mynd og er þetta fyrsta myndin sem Shayk birtir af dóttur sinni að því er fram kemur á vef E!. Shayk stillti sér upp eins og fyrirsæta í fötum frá Burberry en sú stutta var klædd í litrík föt. Móðirin passaði að ekki sæist í andlit dóttur sinnar. 

Shayk greindi frá því að „pabbi“ hefði tekið myndina. Á hún þar líklega við barnsföður sinn, hinn 46 ára gamla Cooper. Parið fyrrverandi er sagt ala dóttur sína upp saman í góðu. 

View this post on Instagram

A post shared by irinashayk (@irinashayk)

Bradley Cooper ásamt dóttur sinni.
Bradley Cooper ásamt dóttur sinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert