Mun ekki halda steypiboð

Meghan hertogaynja af Sussex.
Meghan hertogaynja af Sussex. AFP

Meghan hertogaynja af Sussex hefur tekið þá ákvörðun að halda ekki steypiboð fyrir fæðingu dóttur sinnar nú í sumar. Meghan gengur nú með sitt annað barn. 

„Meghan finnst stórt steypiboð með gjöfum ekki viðeigandi núna. Það er of mikið af átökum í heiminum. Þau Harry hafa látið til sín taka í mannúðarmálum, og þeim finnst tíma sínum og peningum betur varið í annað,“ sagði heimildamaður Us Weekly um málið. 

Meghan hefur notið stuðnings vina sinna í þessum málum. 

Þegar Meghan átti von á sínu fyrsta barni, syninum Archie, héldu vinkonur hennar stórt steypiboð í New York. Þá hélt svilkona hennar, Katrín hertogaynja, einnig steypiboð fyrir hana í Bretlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert