Langaði að verða móðir í yfir áratug

Naomi Campbell.
Naomi Campbell. AFP

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell kom mörgum á óvart í vikunni þegar hún greindi frá því að hún væri orðin móðir. Heimildamaður segir að barneignirnar ættu ekki að koma á óvart, Campbell hafi langað til að verða móðir í yfir áratug. 

„Hana hefur langað í barn lengi, yfir áratug. Og allir sem eru hissa á því að Campbell sé að eignast barn ein, á sinn eigin hátt, þekkja ekki Naomi Campbell. Hefur hún ekki endurskilgreint allt sem hún hefur snert?“ sagði heimildamaður People

Campbell sagði frá því að hún hefði eignast dóttur fyrr í vikunni. Hún hefur ekki greint frá því hvernig hún eignaðist barnið, hvort hún hafi gengið með það, hvort það sé líffræðilega hennar eða hvort hún hafi ættleitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert