Ekki tilbúin að gefa upp drauminn

Whitney Port.
Whitney Port. Skjáskot/Instagram

Sjónvarpsstjarnan Whitney Port og eiginmaður hennar Tim Rosenman eru ekki tilbúin að gefa upp drauminn um að eignast annað barn á náttúrulegan hátt. Port hefur misst fóstur tvisvar á rúmu ári. 

Í viðtali við Us Weekly sagði Port að þau væru ekki farin að skoða ættleiðingar. „Við erum ekki komin í það ferli enn. Ég missti fóstur tvisvar sinnum á einu eða einu og hálfu ári. Þannig að við erum að reyna. En við erum ekki búin að plana neitt meira þessa stundina,“ sagði Port. 

Hjónin eiga einn son, Sonny sem er þriggja ára, og vonast til þess að geta gefið honum systkini náttúrulega. 

„Við sjáum hvernig þetta gengur. Ég var að byrja á nýjum hlut sem felur í sér að svara ekki spurningum um það sem ég veit ekki svarið við. Þá líður mér illa með sjálfa mig þar sem ég veit ekki svarið. Þannig að já, ættleiðing, ég er 100% opin fyrir því. En við erum ekki komin þangað enn,“ sagði Port.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert