Faldi óléttuna í heimsfaraldrinum

Emmy Rossum er orðin móðir.
Emmy Rossum er orðin móðir. AFP

Shameless-leikkonan Emmy Rossum eignaðist dóttur á dögunum með eiginmanni sínum, kvikmyndagerðarmanninum Sam Esmail. Þetta er fyrsta barn Rossum, sem tókst að fela óléttuna fyrir fjölmiðlum í kórónuveirufaraldrinum. 

Leikkonan er 34 ára en eiginmaður hennar 43 ára. „Á björtum mánudagsmorgni klukkan 8:13 buðum við dóttur okkar velkomna í heiminn,“ skrifaði Rossum á Instagram. Hún birti tvær bumbumyndir af sér og fótspor dóttur sinnar. 

Stjörnunum hefur gengið vel að fela meðgönguna í kórónuveirufaraldrinum. Fréttirnar komu mörgum aðdáendum hennar á óvart enda birti hún myndir af sér á Instagram síðustu mánuði en passaði að sýna ekki magann. Hún var ekki með í lokaþáttaröðinni af Shameless sem frumsýnd var 11. apríl. Vonast var til þess að hún yrði með en framleiðandi þáttanna sagði í viðtali í apríl að kórónuveiran hefði gert það ómögulegt. 

View this post on Instagram

A post shared by Emmy Rossum (@emmy)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert