Á von á fjórða barninu á innan við ári

Nick Cannon er sagður eiga von á sjöunda barninu.
Nick Cannon er sagður eiga von á sjöunda barninu. AFP

Leikarinn og tónlistarmaðurinn Nick Cannon er talinn eiga von á sínu sjöunda barni og því fjórða á innan við ári. Barnið verður fyrsta barn hans og fyrirsætunnar Alyssu Scott en hann á einnig von á tvíburum með Abby De La Rosa. 

Fyrirsætan Scott birti óléttumynd af sér á Instagram í síðustu viku að því er fram kemur á vef People en nú er búið að eyða myndinni. Barnið mun vera drengur og hefur fengið nafnið Zen S. Cannon. Nafnið gefur til kynna hver faðirinn er en fyrirsætan er komin 34 vikur á leið. Einn fylgjandi óskaði Scott og Cannon til hamingju og hún þakkaði fyrir.

Cannon og fyrirsætan Brittany Bell eignuðust dótturina Powerful Queen í desember 2020 en stúlkan var þeirra annað barn saman. Í apríl tilkynnti Abby De La Rosa að hún ætti von á tvíburadrengjum með Cannon. 

Elstu börn Cannon eru tíu ára tvíburar en þá á hann með söngdívunni Mariuh Carey. 

Mariah Carey og Nick Cannon eiga tvíbura saman.
Mariah Carey og Nick Cannon eiga tvíbura saman. Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert