Auðunn og Rakel gáfu syninum nafn

Litli drengurinn fékk nafnið Matteó Orri Blöndal.
Litli drengurinn fékk nafnið Matteó Orri Blöndal. Skjáskot/Instagram

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og fyrirsætan Rakel Þormarsdóttir gáfu syni sínum nafn í dag. Litli drengurinn fékk nafnið Matteó Orri Blöndal. 

Matteó litli kom í heiminn í byrjun maí og er annað barn foreldra sinna. Fyrir eiga þau Auðunn og Rakel soninn Theódór Sverri Blöndal sem verður tveggja ára síðar á þessu ári. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert