Langar í fleiri börn með Schwarzenegger

Chris Pratt langar að stækka fjölskylduna sína.
Chris Pratt langar að stækka fjölskylduna sína. AFP

Leikarinn Chris Pratt er spenntur fyrir því að stækka fjölskyldu sína en hann og eiginkona hans, Katherine Schwarzenegger, eignuðust sitt fyrsta barn saman á síðasta ári. Pratt segir að eiginkona hans sé frábær móðir, en þau giftu sig nýverið og hann segist vera yfir sig ástfanginn af dóttur Tortímandans, Arnolds Schwarzeneggers.

Leikarinn góðkunni segir að konan hans hafi breytt lífi hans til hins betra, honum finnst hann og sonur hans öruggir með hana og hann segir að hún sé frábær stjúpmóðir. Pratt var kvæntur leikkonunni Önnu Faris frá 2009 til 2017 og var það vandasamt hjónaband. Saman eiga þau soninn Jack Pratt sem er sjö ára.

Frétt MSN.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert