Birtir loks mynd af andliti dóttur sinnar

Channing Tatum.
Channing Tatum. AFP

Leikarinn Channing Tatum deildi í fyrsta skipti opinberlega mynd af dóttur sinni, Everly, á Instagram-síðu sinni á dögunum. Bæði Tatum og barnsmóðir hans Jenna Dewan hafa í 8 ár haldið dóttur sinni frá fjölmiðlum eða þar til nú þegar hann birtir mynd af þeim feðginum saman á Instagram. Á myndinni heldur hann utan um dóttur sína sem brosir sínu breiðasta. „Þú mitt litla ert mér allt! Þú ert heimurinn og hjartað mitt,“ skrifaði Tatum undir myndina.

Tatum gaf smá innsýn í hvað feðginin voru að bralla þetta augnablik en hann skrifar að Everly hafi verið að skoða fullt tungl þegar myndin var tekin og hún sagði föður sínum spádóminn um hafmeyjuna og fulla tunglið. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert