Ronaldo-fjölskyldan á einkasnekkju

Ronaldo í fríi ásamt fjölskyldunni sinni
Ronaldo í fríi ásamt fjölskyldunni sinni Skjáskot/Instagram

Portúgalska knattspyrnustjarnan Cristiano Ronaldo er kominn í kærkomið frí frá knattspyrnu. Hann eyðir fríinu með konu sinni og fjórum börnum á 100 milljón króna snekkju sem hann keypti síðasta sumar. Snekkjan er 27 metra löng og í henni eru fimm svefnherbergi, sex baðherbergi, tvær setustofur og opið eldhúsrými. 

Ronaldo birtir mynd af sér ásamt fjölskyldunni um borð í snekkjunni á Instagram en 300 milljónir fylgja honum á samfélagsmiðlinum, sem gerir hann að vinsælustu stjörnu Instagram. „Það er kominn tími til að slaka á með þeim sem ég elska,“ skrifaði Ronaldo við mynd á Instagram og á þar við konuna sína Georgínu Rodriguez og börnin fjögur, 11 ára Cristiano yngri, 4 ára tvíburana Mateo og Evu Maríu og svo hina 3 ára Alönu Martínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert