Wintour þreföld amma á árinu

Anna Wintour rit­stýra banda­ríska Vogue.
Anna Wintour rit­stýra banda­ríska Vogue. AFP

Anna Wintour, rit­stjóri banda­rískrar út­gáfu tíma­rits­ins Vogue og valda­mesta kona tísku­heims­ins, eignast sitt þriðja barnabarn seinna á þessu ári ef marka má myndir sem fréttamiðilinn PageSix birti á dögunum. Þar má sjá ólétta dóttur Wintour, Bee Schaffer, spóka sig á Ítalíu í strandbænum Portofino ásamt eiginmanninum Francesco Carrozzini.

Hjónin vinna bæði í skemmt­anaiðnaðinum; Schaf­fer vinn­ur fyr­ir Late Nig­ht Show með Seth Meyers en Corrozz­ini er kvik­mynda­gerðarmaður og ljós­mynd­ari. Þetta er fyrsta barn hjónanna, sem fagna í júlí þriggja ára brúðkaupsafmæli en þau hafa verið í sambandi síðan 2016.

Bee Shaffer og Anna Wintour.
Bee Shaffer og Anna Wintour. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert