Madonna í feiknafjöri á fótboltaleik

Madonna ásamt börnunum sínum og faði hennar, Silvio Anthony Ciccone.
Madonna ásamt börnunum sínum og faði hennar, Silvio Anthony Ciccone. Skjáskot/instagram

Söngkonan Madonna hitaði upp fyrir úrslitaleik Englands og Ítalíu í gær þegar hún fylgdist með syni sínum, hinum fimmtán ára David Banda, spila fótbolta úti á túni með kunningjum sínum. 

Hin 62 ára, fimm barna móðir birti myndskeið á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar má sjá Madonnu ásamt börnunum sínum eiga huggulegan sunnudag og fylgjast með David Banda í fótbolta. Söngkonan lifir sig inn í leikinn og hvetur drenginn áfram sem skorar svo gott mark. 

„Nú er komið að úrslitaleiknum í Evrópukeppninni í fótbolta! Áfram Ítalía,“ skrifaði Madonna  sem er af ítölsku bergi brotin. 

View this post on Instagram

A post shared by Madonna (@madonna)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert