Mæðgur en ekki systur

Monica Bellucci deildi forsíðumyndinni af sér og dóttur sinni, Deva …
Monica Bellucci deildi forsíðumyndinni af sér og dóttur sinni, Deva Cassel, á Instagram.

Ítalska leikkonan og fyrirsætan Monica Bellucci situr fyrir á forsíðu júlíútgáfu ítalska Vogue með dóttur sinni. Forsíðustúlkurnar líta helst út fyrir að vera systur en þegar betur er að gáð eru þær mægður. Fötin og dökka hárið villa um. 

Bellucci er 56 ára en Deva Cassel dóttir hennar er einungis 16 ára gömul. Faðir Devu er fyrrverandi eiginmaður Bellucci, franski leikarinn Vincent Cassel. Myndirnar af þeim mæðgum eru drungalegar og kannski nokkuð ítalskar. Þær eru klæddar í föt frá Dolce & Gabbana og báðar með dökkt og mikið hár.   

Deva Cassel er ekki fyrsta stjörnubarnið sem fetar í fótspor móður sinnar með fyrirsætustörfum. Ekki er langt síðan dóttir Heidi Klum, Leni, sat fyrir á forsíðu tíma­rits­ins Glamour í Þýskalandi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert