Sorgmæddur Bretaprins við leikslok

Georg prins í stúkunni ásamt foreldrum sínum, Katrínu hertogaynju og …
Georg prins í stúkunni ásamt foreldrum sínum, Katrínu hertogaynju og Vilhjálmi Bretaprins. AFP

Vonbrigðin leyndu sér ekki í svipbrigðum hins 7 ára gamla Georgs Bretaprins í lok leiks Englands og Ítalíu í gærkvöldi. Ítalir urðu Evrópumeistarar en Englendingar sátu eftir með sárt ennið. 

Georg mætti á leikinn ásamt foreldrum sínum, Vilhjálmi Bretaprins og Katrínu hertogaynju, og sátu þau í fínu stúkunni. 

Fjölskyldan var yfirveguð í lok leiks og sýndi vonbrigði sín á virðulegan máta. Það sama var ekki upp á teningnum þegar England skoraði eftir tæplega tveggja mínútna leik. Vilhjálmur Bretaprins virtist týna stað og stund þegar hann stökk upp úr sæti sínu og Georg litli faðmaði báða foreldra sína kátur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert