Prinsessan frestaði skírn vegna smithræðslu

Eugenie prinssessa og Jack Brooksbank þurftu að fresta skírn sonar …
Eugenie prinssessa og Jack Brooksbank þurftu að fresta skírn sonar síns. AFP

Eugenie prinsessa og eiginmaður hennar Jack Brooksbank frestuðu fyrirhugaðri skírn sonar síns á laugardaginn síðastliðinn vegna smithræðslu. Sonurinn litli, Ágúst Filippus, fæddist 9. febrúar síðastliðinn og vegna heimsfaraldursins hefur hann ekki enn verðið skírður.

Skírnin átti að fara fram í All Saints-kapellunni í hallargörðum Windsor-kastala á laugardag en var frestað með aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara. 

Elísabet II Bretadrottning, amma Eugenie, Beatrice prinsessa og eiginmaður hennar Edoardo Mapelli Mozzi höfðu boðað komu sína í skírnina en færri en þrjátíu manns var boðið vegna heimsfaraldursins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert