Enn með fimm ára dótturina á brjósti

Coco Austin er enn með dóttur sína Chanel á brjósti.
Coco Austin er enn með dóttur sína Chanel á brjósti. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Coco Austin er enn með fimm ára gamla dóttur sína og rapparans Ice-T, Chanel, á brjósti. Hún segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi mæðra á samfélagsmiðlum eftir að hún sagði frá því í viðtali í síðustu viku.

„Finn fyrir miklum stuðningi frá mæðrum á samfélagsmiðlum sem skilja „brjóstadæmið“. Takk. Skilningurinn er ólýsanlegur,“ skrifaði Austin á Twitter. 

Austin sagði í viðtalinu að Chanel litla væri enn hrifin af brjóstinu og fengi sér smá sopa af og til. „Þetta er hluti af tengslamyndun milli móður og barns. Af hverju að taka það frá henni? Ef hún vill það ekki, allt í lagi, þá hættum við. En ég ætla ekki að segja bara nei,“ sagði Austin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert