Baðar börnin alla virka daga

Leikkonan Drew Barrymore.
Leikkonan Drew Barrymore. AFP

Leikkonan Drew Barrymore baðar börnin sín alla virka daga en um helgar mega þau ráða hvort þau fari í bað eða ekki. Stjörnurnar keppast nú um að segja frá því hversu oft þau baða sig og börn sín eftir að stjörnuhjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher sögðu að þau böðuðu ekki börnin sín fyrr en þau væru skítug. 

Kunis og Kutcher ollu miklu fjaðrafoki í Hollywood og stigu hjónin Kristen Bell og Dax Shepherd inn í umræðuna og sögðust ekki baða börnin sín fyrr en þau væru farin að lykta illa. 

Barrymore er greinilega ekki á sömu línu og hin stjörnuhjónin. „Ég er bara að leitast eftir jafnvægi,“ sagði Barrymore í viðtali við Entertainment Tonight. Barrymore og dæturnar Frankie og Olive sem eru 7 og 8 ára. 

„Ég hugsa bara að þær voru í skólanum í allan dag, reyndar ekki síðustu tvö ár vegna heimsfaraldursins, en þegar þær fór í skólann þá baðaði ég þær öll kvöld. Algjörlega,“ sagði Barrymore. 

„Um helgar, ef þær voru í söltum sjónum alla daga. Það er í fínu. Ég baða börnin mín um fimm sinnum í viku. Stundum sex sinnum. Fimm til sex sinnum í viku,“ sagði Barrymore. 

Hún sagðist þó ekki dæma þau sem böðuðu börn sín og sjálf sig sjaldnar. „Þetta eru ekki hlutir sem ég myndi fara pirra mig yfir, svona miðað við allt það sem er í gangi. Kannski þarf fólk bara smá pásu. Ef þetta er heitasta umræðan í dag, þá held ég að fólk þurfi bara smá pásu,“ sagði Barrymore.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert