Leikkonan Gabrielle Union birti myndband á dögunum á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún sýnir dóttur sinni hvernig á að elska líkama sinn. Dóttir hennar, Kaavia James, tveggja og hálfs árs, spyr móður sína út í fæðingarbletti sem hún er með.
Í myndbandinu standa þær saman ofan í sundlaug þegar Kaavia James segir við móður sína að hún hafi fullt af fæðingarblettum. „Mamma er með fullt af fæðingarblettum,“ segir hún. Móðir hennar svarar henni og segir við hana að hún hafi fæðingarbletti á andlitinu. Þá svarar Kaavia James: „Ég er ekki með neina fæðingarbletti.“ Union segir þá dóttur sinni að hún haldi að hún hafi tvo.