Pattra og Theódór eiga von á barni

Pattra Sriyanonge og Theódór Elmar Bjarnason eiga von á barni …
Pattra Sriyanonge og Theódór Elmar Bjarnason eiga von á barni nr. 2. Skjáskot/Instagram

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og fótboltamaðurinn Theódór Elmar Bjarnason eiga von á barni. Parið greindi frá gleðifréttunum í gær. 

Þetta er annað barn þeirra Pöttru og Theódórs en fyrir eiga þau soninn Atlas Aron. Von er á barninu hinn 1. mars  á næsta ári. 

Pattra er bloggari á vefnum Trendnet og fjallar þar um tísku og útlit. Theódór Elmar spilar um þessar mundir með liði KR en hann kom heim á þessu ári eftir 17 ár í atvinnumennsku erlendis. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert