Strákur á leiðinni?

Kylie Jenner með dóttur sinni Stormi í auglýsingu fyrir nýja …
Kylie Jenner með dóttur sinni Stormi í auglýsingu fyrir nýja barnavörulínu fyrir KylieBaby. Skjáskot/Instagram

Aðdáendur viðskiptakonunnar og samfélagsmiðlastjörnunnar Kylie Jenner telja hana nú ganga með dreng. Jenner gengur með sitt annað barn en hefur sjálf ekkert gefið upp um kyn barnsins. Aðdáendur byggja kenningu sína á auglýsingamyndum þar sem liturinn blár er áberandi. 

Myndirnar eru fyrir nýja barnavörulínu hennar, KylieBaby. Umbúðirnar eru bleikar og bláar en Jenner og dóttir hennar Stormi eru klæddar í blátt á auglýsingamyndunum. 

Jenner greindi frá því í september að hún ætti von á sínu öðru barni með rapparanum Travis Scott. Nokkrum vikum áður höfðu slúðurmiðlar greint frá óléttunni. 

View this post on Instagram

A post shared by Kylie 🤍 (@kyliejenner)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert