Sálfræðingur mælti með skírlífi eftir sjöunda barnið

Sálfræðingur mældi með skírlífi við Nick Cannon eftir að hann …
Sálfræðingur mældi með skírlífi við Nick Cannon eftir að hann eignaðist sjöunda barnið.

Tónlistarmaðurinn Nick Cannon segir að sálfræðingurinn hans hafi mælt með skírlífi við hann eftir að sjöunda barn hans kom í heiminn í sumar. 

Cannon eignaðist þrjú börn með tveimur konum í júní síðastliðnum og fyrir átti hann fjögur börn með tveimur öðrum konum. 

Tónlistarmaðurinn ræddi barnalánið í viðtali við Entertainment Tonight fyrir helgi. „Ég er úr stórri fjölskyldu, ég á mörg systkini. Ég fékk fjölbreytt uppeldi, þar sem ég ólst upp í mjög óhefðbundinni fjölskyldu, stundum með ömmu minni og afa, og ég elska og hef svo mikla ástríðu fyrir börnum og fjölskyldu. Ég vil líka eiga stóra fjölskyldu,“ sagði Cannon. 

Elstu börn Cannons eru tíu ára. Það eru tvíburarnir Moroccan og Monroe sem hann átti með fyrrverandi eiginkonu sinni Mariuh Carey. Soninn Golden á hann með fyrrverandi kærustu sinni Brittany Bell en þau eignuðust einnig dótturina Powerful Queen í lok síðasta árs. 

Á júní þessu ári eignaðist hann tvíburana Zion og Zillion með Abby de La Rosa. Soninn Zen átti hann í sama mánuði með fyrirsætunni Alyssu Scott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert