Beatrice prinsessa og eiginmaður hennar Edoardo Mapelli Mozzi nefndu dóttur sína eftir ömmu Beatrice, Elísabetu II Bretadrottningu. Litla stúlkan fékk nafnið Sienna Elísabet Mapelli Mozzi.
Sienna litla kom í heiminn 18. september síðastliðinn og tilkynnti konungsfjölskyldan nafn hennar á Instagram í dag.
Þá brutu þau konunglega hefð og birtu ekki mynd af litlu stúlkunni sinni heldur aðeins mynd af fótsporum hennar við fæðingu.
„Líf okkar saman er rétt byrjað, og ég get ekki beðið eftir að upplifa allt það magnaða sem bíður okkar,“ skrifaði Mapelli Mozzi við myndina á Instagram.
„Ég er svo þakklátur fyrir og elska eiginkonu mína, litlu Siennu og Wolfie svo mikið. Mig langar aldrei að gleyma þessum dögum,“ bætti hann við.
Hann sendi einnig þakkir til ljósmóðurinnar og teymisins á Chelsea- og Westminster-spítala.
Sienna litla er tólfta langömmubarn drottningarinnar en þótt móðir hennar sé með prinsessutitil fær sú stutta ekki titil. Konungstitlar erfast aðeins í karllegg en drottningin getur þó veitt afkomendum sínum titla ef hún kýs svo.