Fámál um Lilibet Díönu

Meghan hertogaynja í New York.
Meghan hertogaynja í New York. AFP

Hertogahjónin af Sussex, Harry og Meghan, fóru til New York í síðustu viku. Margir fylgdust með þeim en fyrir utan að heilsa fólki vildi Meghan gefa litlar upplýsingar um nýfædda dóttur þeirra Harrys. 

„Hún er falleg,“ sagði Meghan einfaldlega þegar blaðamaður spurði Meghan hvernig Lilibet væri að því er fram kemur á vef Cosmopolitan. Spurð út í Archie brosti hún einfaldlega og sýndi þumalinn. 

Lilibet Díana fæddist í júní en fyrir áttu hjónin hinn tveggja ára gamla Archie. Lilibet Díana fæddist í Bandaríkjunum eftir að foreldrarnir sögðu sig frá opinberum skyldum fyrir bresku konungsfjölskylduna. Archie hins vegar fæddist á Englandi og fékk almenningur að fylgjast betur með fyrstu mánuðunum í lífi hans. Enn hafa ekki birst myndir af Lilibet Díönu.

Harry og Meghan eiga tvö börn.
Harry og Meghan eiga tvö börn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert