Urðu foreldrar eftir 2 mánaða samband

David E Kelley og Michelle Pfeiffer hafa verið gift í …
David E Kelley og Michelle Pfeiffer hafa verið gift í 27 ár og eiga saman tvö börn. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Michelle Pfeiffer deildi á dögunum sjaldséðri mynd af sér með börnunum sínum. Við myndina skrifaði hún: „Ég veit ég er sein að halda upp á alþjóðlegan dætradag og sonardag. John og Claudia. Ég elska þessa gemlinga. Þau hafa gefið lífi mínu dýpri merkingu frá fyrstu stundu. 18 mánuðir á milli þeirra. Þau eru óaðskiljanleg. Bestu vinir.“

Börnin eru nú á þrítugsaldri en Pfeiffer á þau með framleiðandanum David E. Kelley. Pfeiffer og Kelley giftust árið 1993 og ættleiddu saman dótturina Claudiu. Dóttirin var skírð á brúðkaupsdeginum þeirra. Stuttu síðar varð Pfeiffer ólétt og ól soninn John Henry Kelley II árið 1994. 

Pfeiffer hefur almennt ekki mikið tjáð sig um fjölskyldulíf sitt en í viðtali við Good Houskeeping árið 2007 sagði hún frá ættleiðingarferlinu.

„Ég var í miðju ættleiðingarferli þegar ég kynntist Kelley. Við vorum bara búin að vera saman í tvo mánuði þegar við fengum hana. Við urðum því strax foreldrar í glænýju sambandi, flestir upplifa ekki slíkt. En ég fékk strax að sjá hann í aðstæðum sem aðeins raunverulegur karlmaður myndi ráða við. Hann stóð undir öllum mínum væntingum.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert