Dóttir Kourtney kom ógnvekjandi fyrir sjónir

Kourtney Kardashian ásamt dóttur sinni Penelope.
Kourtney Kardashian ásamt dóttur sinni Penelope. Skjáskot/Instagram

Dóttir Kourtney Kardashian, hin níu ára gamla Penelope Disick, er greinilega farin að hlakka til hrekkjavökunnar. Mamma hennar deildi myndum af henni á Instagram þar sem hún klæddist fremur ógnvekjandi klæðnaði ásamt hryllilegri förðun í anda hrekkjavökunnar.

Kourtney á þrjú börn með fyrrverandi unnusta sínum Scott Disick, þau Mason, 11 ára, Penelope, 9 ára, og Reign, 6 ára. 

Hrekkjavakan er stór hátíðisdagur á meðal barna og fullorðinna í Bandaríkjunum og er hann haldinn hinn 31. október næstkomandi. Hafa fleiri lönd tileinkað sér þennan dag til þess að krydda tilveruna og gert hann að ríkri hefð. Margir hverjir eru því farnir að huga að hryllilegum og draugalegum búningum, fylgihlutum og skrautmunum til þess að klæðast þann dag og er Penelope litla þar engin undantekning. 

Hrekkjavökustemningin á heimilinu er nánast áþreifanleg þrátt fyrir að rúmar þrjár vikur séu til stefnu. Kourtney birti einnig myndir af hræðilegum skreytingum heimilisins sem einkenndust af beinagrindum, hauskúpum og kóngulóarvefjum svo eitthvað sé nefnt. Er mikið í hrekkjavökuna lagt og virðast allir hafa gaman af, stórir sem smáir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert